Britney Cots hefur verið valin í landslið Senegal. Hér er hún í leik með FH gegn Haukum á laugardaginn. Mynd/FH - Brynja Trausta

Britney Cots, markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna, hefur verið valin í landsliðshóp Senegal sem verður í æfingabúðum í Cherbourg í Frakklandi  frá 28. september til 3. október. Eftir því sem næst verður komst er þetta í fyrsta sinn sem Cots er kölluð inn til æfinga með A-landsliði Senegal.

Cots og FH-ingar verða að bíta í það súra epli að við komuna til Íslands eftir æfingabúðirnar verður hún að fara í sóttkví.  Gangi allt vel ætti Cots  samt að verða tilbúinn í leik með FH laugardaginn 10. október gegn HK í 4. umferð en hlé verður gert á keppni í deildinni eftir næstu helgi og til 9. október vegna alþjóðlegra landsliðadaga.  

Valið er mikil viðurkenning fyrir Cots og einnig FH en hún er núna að hefja sitt þriðja keppnistímabil með Hafnarfjarðarliðinu. Cots  hefur tekið stöðugum framförum á þeim tíma sem hún hefur notið leiðsagnar Jakobs Lárussonar þjálfara FH.  Cots er eins og fyrr segir markahæsti leikmaður Olísdeildarinnar eftir tvær umferðir með 22 mörk.

Hún framlengdi samning sinn við FH í vor til tveggja ára.

Landslið Senegal hefur verið í sókn á síðustu árum og tók m.a. í fyrsta sinn þátt í heimsmeistaramóti  á síðasta ári og náði viðunandi úrslitum. Það vann einn leik í riðlakeppninni gegn Kasakstan en tapaði fyrir landsliðum Spánar, Rúmeníu, Ungverjalands og Svartfjallalands án þess að fá skelli. Stærsta tapið var á móti Ungverjum, 30:20, í næst síðustu umferð riðlakeppninnar.  Í krossspili um 17. – 20. sæti vann Senegal landslið Kongó, 28:23, en tapaði fyrir landsliði Brasilíu, 22:18, í leik um 17. sætið.

- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Valin í landslið Senegal

Britney Cots, markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna, hefur verið valin í landsliðshóp Senegal sem verður í æfingabúðum í Cherbourg í Frakklandi  frá 28....

Molakaffið: Sandra sú besta, Viggó og Arnór Þór

Sandra Erlingsdóttir var valin maður leiksins þegar EH Aalborg vann Lyngby í dönsku B-deildinni á laugardaginn, 27:18. Sandra hefur leikið afar vel...

Á sigurbraut í Færeyjum

Arnar Gunnarsson og lærisveinar hans í Neista unnu stórsigur á STÍF, 37:26 í öðrum leik liðsins í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik karla...
- Auglýsing -